TM mótið - gisting

TM mótið er haldið ár hvert í júní í Vestmannaeyjum. Hverju liði fylgir vanalega dygg stuðningsveit af fjölskyldumeðlimum og aðstandendum. 

Nýja Pósthúsið er íbúðahótel með 17 fullbúnum íbúðum 28-38 fermetrum að stærð. Við erum staðsett á Vestmannabraut í hjarta bæjarins. Það eru næg bílastæði við íbúðahótelið en stutt er í alla þjónustu, verslanir, kaffihús og veitingastaði.

Íbúðirnar eru með fullbúin eldhús og því er ekki boðið upp á morgunmat. Stutt er í næstu matvöruverslun, veitingastaði og kaffihús.

2ja herbergja íbúðirnar

  • 30-38 fermetra íbúðir með einu svefnherbergi
  • Tvö einbreið eða stórt tvíbreitt rúm ásamt svefnsófa, svefnaðstaða fyrir 2-4 manns
  • Fullbúið eldhús og eldhúsborð
  • Baðherbergi með sturtu og hreinlætisvörum
  • Snjallsjónvarp með aðgang að Netflix
  • Sér svalir

Stúdíóíbúðirnar

  • 28 fermetra stúdíóíbúð
  • 140 cm rúm og svefnsófi, svefnaðstaða fyrir 2-3 manns
  • Fullbúið eldhús og eldhúsborð
  • Baðherbergi með sturtu og hreinlætisvörum
  • Snjallsjónvarp með aðgang að Netflix
  • Sér svalir

 

 

Nýja-pósthúsið-íbúð

Ferðin til Eyja
Herjólfur er alla jafna með 12 brottfarir á dag milli lands og eyja. Siglingin tekur 35-40 mínútur en akstur á milli Reykjavíkur og Landeyjahafnar er tæplega 2 tímar. Í einstaka tilfellum siglir ferjan frá Þorlákshöfn og tekur þá siglingin 2 tíma og 45 mínútur, en akstur frá Reykjavík til Þorlákshafnar er 45 mínútur. Nánari upplýsingar á vef Herjólfs.

Nýja Pósthúsið er í 10 mínútna göngufjarlægð frá Vestmannaeyjahöfn.

Afþreying í Vestmannaeyjum
Eyjarnar iða af lífi á þessum árstíma. Sprangan er einn af þessum „must do“ hlutum þegar eyjarnar eru heimsóttar. Vinsælt er að ganga upp á Eldfell en það tekur um hálfa til eina klukkustund, en þar er frábært útsýni yfir eyjarnar. Hægt er að finna fjölmargar skemmtilegar gönguleiðir inná vef Vestmannaeyjabæjar. Einnig er hægt að leigja fjallahjól, fara í fjórhjólaferð, Rib safari, bátsferðir eða bóka aðra afþreyingu, hægt er að sjá hvað er í boði inná Visit Vestmannaeyjar.  

Í Vestmannaeyjum er gott úrval veitingastaða þar sem hægt er að gera vel við sig í mat og drykk, við mælum sérstaklega með GOTT á Bárustíg 11. Pítsugerðin er einnig á Bárustíg en þar fást frábærar pizzur til að taka með. Slippurinn hefur slegið rækilega í gegn en þau nota staðbundið og árstíðabundið íslenkt hráefni. NÆS, systurstaður Slippsins, býður upp á mat og drykki öll kvöld og bröns um helgar. Brothers Brewery, handverksbrugghús hefur slegið í gegn fyrir frábæran bjór og góða stemningu. Í sömu götu er Frúin góða vínbar.

Fyrir gott kaffi og bakkelsi þá er Vigtin Bakhús á Tangagötu alveg upplagt, þau opna snemma á morgnana og loka seinni partinn. Við höfnina er veitingastaðurinn Tanginn.

Eldheimar, safn minninganna um eldgos í Vestmannaeyjum er einstök upplifun sem lætur engan ósnortinn.
Sagnheimar, byggðasafn og náttúrugripasafn Vestmannaeyja.
Hjá Sealife Trust er m.a. hægt að heimsækja mjaldrasysturnar Litlu-Hvít og Litlu-Grá.
Sundlaugin í Vestmannaeyjum er mjög fjölskylduvæn, þar er bæði inni og útilaug, tvær stórar rennibrautir ásamt ýmsum öðrum leiktækjum og heitum pottum.

Bóka gistingu
Sjá lausar nætur hér eða hafið samband á info@thenewpostoffice.is. Við erum líka á Facebook og Instagram.

Önnur gisting
Einnig bjóðum við upp á einbýlishús og lúxusíbúðir undir merkjum Westman Islands Villas & Apartments.

Um TM mótið
TM mótið er haldið árlega í Vestmannaeyjum, ofast í byrjun eða um miðjan júní. Á mótinu keppir 5. flokkur kvenna í knattspyrnu. Mótið var fyrst haldið árið 1990. Nánar um TM mótið hér.